Blaður og þvaður

30.05.2009 17:00:42 / reyniratli

Ísland

Sæl

Við íslendingar erum hálfvitar svo einfalt er það. Fyrst tökum við okkur til og höldum party aldarinnar og skítum á stofugólfið brjótum allt sem hægt er rífum kjaft við nágrannana eyðileggjum rósarunnana þeirra og stöndum stolt yfir rústunum og segjumst sterkust gáfuðust fallegust og stórasta land í heimi.
Núna er þynnka í gangi og ofur denni og súper jóka hafa tekið að sér að hreinsa til eftir partyið . Það er ekki auðvelt verk , því engin vill taka ábyrgð á neinu sem gerðist um kvöldið og enginn kannast við það að hafa hagað sér eins og fífl en nonni geira og bjöggi þeir voru slæmastir og þeir eiga bara að taka til og borga skemmdirnar ekki hinir...

Ó.k viðurkenni að nonni var enginn engill og hvað þá bjöggi en þeir bera ekki ábyrgð á því að hinir létu óspart skrifa hjá sér á barnum kvöldið sem veislan var.  Núna kannast engin við það að hafa látið skrifa hjá sér og fyllerísskuldin er kölluð skuldir heimilanna.

Ég vorkenni því fólki sem núna þarf að horfast í augu við það að erlenda barskuldin er orðin tvöföld en því miður var þetta nokkuð fyrirsjáanlegt ef maður er vitur eftir á.
Íslenska krónan er pínku gjaldmiðill sem var blásin upp af  bjögga og nonna til að hafa efni á góðu partyi . Það breytir samt sem áður ekki því að skríllinn lét blekkjast og hóf þá upp til skýja svo lengi sem þeir splæstu á barnum. Allir hafa þó vitað innst inni að allar veislur taka endi .

Núna þarf hver og einn að horfast í augu við afleiðingar sukksins og borga barreikninginn.
Hver og einn ber ábyrgð á sínum barreikning . Allir vissu að ísl krónan gat fallið og að það fólst áhætta í því að taka erlent barlán . Barþjónninn hann Davíð hjálpaði reyndar ekki til með því að gera eins lítið úr áhættunni og mögulegt var enda ekki erfitt að blekkja fólk þegar veisluvíman blindar öll vit.


Það er ekki öfundsvert hlutverk hjá denna og jóku að taka til eftir þetta sukk og þau skapa sér nákvæmlega engar vinsældir á  því sem þarf að gera.
Ég fullyrði að þetta sé fyrsta og síðasta vinstri stjórn íslandssögunnar og pólitískt sjálfsmorð hjá þessu hugrakka fólki.

Skattahækkanir eru líklega eina leiðin til að draga landið upp úr þessari sukksúpu og þær bitna á öllum . Mér finnst reyndar að það þurfi að hundelta bjögga og nonna og taka af þeim allar þær krónur sem þeir eiga og láta þá borga sinn hlut sjálfa .
Einnig væri ekki vitlaust að svipta þá ríkisborgararétti og ákæra þá fyrir landráð eða eitthvað álíka.

Eiginhagsmunaflokkur auðvaldsins mun leggja sig allan fram við að firra sig allri ábyrgð á gjörðum sínum og fær öflugan stuðning frá bjánaflokknum kjaftfora sem fyrir nokkrum árum var flokkur landsbyggðarinnar og bænda en er víst núna fluttur á mölina.

Þeim mun takast ætlunarverk sitt og fá almenning á sitt band og í næstu kosningum spái ég því að V.G fái 8 % fylgi Samfó 9% og D og B rest . . .

Kram . . .





Arnór skrifaði
Tek undir þessa spá þína, því miður. Þetta minni og þessi veruleikafirring íslendinga er engu lík. Er þetta svona líka annars staðar eða er einhver jarðtenging hjá útlendingunum.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 9503