Blaður og þvaður

21.11.2009 18:18:57 / reyniratli

Lofa---

Eg lofa nyju bloggi bradum . . . . . . .

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.07.2009 18:15:32 / reyniratli

samstaða

Eitt sem Davíð heitinn hafði umfram núverandi leiðtoga þessarar þjóðar. 

Hann lét menn halda kjafti og standa saman hversu heimskulegar hans hugmyndir stundum og oftast voru þá var hann snillingur í að "keyra" mál i gegn með frekjunni.

Þetta er það sem leiðtogar þurfa stundum að gera . Leiðtogi er ekki neitt skemmti starf menn þurfa að vera frekir óvægir sannfærandi og einarðir í ákvörðunartöku. 

Núna er stjórnleysi á ríkisstjórnarflokkunum og engin almennileg samstaða. Þetta smitar út í samfélagið og skapar óvissu og hræðslu. 

Leiðtogi á  að skapa samstöðu sama hversu vitlaust málefnið er eða ónýtur málstaðurinn er . Hitler var t.d góður leiðtogi þótt málsstaðurinn hafi verið ónýtur.

Jóka hún er enginn leiðtogi þrátt fyrir að vera ágætis kerling. Steingrímur er ekki heldur nógu sannfærandi þó mér finnist hann skárri.

Kram


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.06.2009 15:14:19 / reyniratli

Og hvað nú ?

sæl

Svo virðist sem allir pólitíkusar séu spilltir óheiðarlegir drulluhalar meira segja Gunnar Birgisson.
 Steingrímur og jóhanna virðast ekki geta verið heiðarleg fremur en aðrir stjórnmálamenn. Þau ætla eða geta ekki staðið við neitt af stóru orðunum sem þau létu falla í kosninga"baráttunni" .

Þau ætla að leggja öryrkja og ellilífeyrisþega í einelti og láta ríkisbubbana eiga sig alveg eins og forverar þeirra í ríkisstjórn. Það á að skattpína þá lægst launuðustu en leyfa þeim sem best hafa það að vera í friði . Ræflarnir mega blæða það hefur alltaf verið þannig í þessu landi og mun ekki breytast neitt.

Eins er stefna þeirra "allt upp á borðið" komin langt undir borðið. Það sannaði icesave .

Ég er ekki á móti því að borga icesave reikningana annað væri ekki heilnæmt fyrir land og þjóð. En ég held að þau hafi gert afar stór mistök með að semja um icesave í skúmaskotum . Það gefur bretum og hollendingum alltof sterka samningastöðu.
Við áttum að vera sterkari aðillinn við borðið og hóta þeim því að semja ekki neitt og leyfa bara öllu að fara til fjandans. Það var meira í húfi fyrir þá en okkur.

Ég studdi þessa ríkisstjórn í byrjun og geri enn því þetta er líklega skásti kosturinn í stöðunni . Eina sem ég ætlast til af þeim  er að vera samkvæm sjálfum sér og standa við það sem þau lofuðu fyrir kosningar, heiðarleiki og gegnsæi.

Verk þeirra undanfarið eiga skylt við margt en ekki heiðarleika eða gegnsæi.

Allir pólitíkusar heimsins eiga það sameiginlegt að vera lygnir og að bera eigin hag fyrst fyrir brjósti þrátt fyrir að vera yfirlýsingaglaðir um hið gagnstæða.

Ég vonaði að VG myndi ekki falla í ormagryfju pólitíkarinnar og halda uppi hugsjón um lýðræði heiðarleika og almannahagsmuni. Vonaði lika að VG væri flokkur almennings hins venjulega meðaljóns sem styddi við bakið á þeim sem minnst mættu sín í samfélaginu . Vg væri flokkurinn sem léti óheiðarlegu smástrákanna sem felldu ísland svo eftirminnilega finna fyrir sverði réttlætissins.
Gleymdi því kannski að VG er pólitískur flokkur en ekki engla hersing. . . 


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.06.2009 19:29:17 / reyniratli

Þetta reddast . . .

Sæl

Ég var í óopinberi heimsókn í sverge um helgina , það var ákaflega indælt fyrir utan norðan garran  og blessaða sólina sem sammæltist líklega garranum um að murka úr fölum íslendingnum tóruna. Garrinn frysti mig og sólin brenndi af mér nefið .

Það sem oft varð að umtalsefni var blessuð kreppan á íslandi. Flestum svíum finnst íslendingar raunveruleikafirrtir því fæstir íslendingar viðurkenna að það sé kreppa.
Þeir bera sig mannalega og láta sem eggert sé .
Ein vinkona mín tjáði mér þá skoðun sína að líklega myndi þetta hugarástand okkar bjarga okkur frá alvarlegri kreppu.

Um leið og við viðurkennum raunveruleikann þ.e.a.s Ice save skuldirnar og allan pakkann þá er kreppan orðin raunveruleg í huga okkar. Fæstir sem ég þekki viðurkenna kreppu. Þeir segja jú það er bras en þetta reddast.

Þar af leiðir að það er engin helvítis kreppa bara verkefni eða smá bras sem þarf að takast á við.

Á margan hátt er þetta rétt .

Það eru hvorki stríð né náttúruhamfarir.

Það er ekki hungursneyð pestir eða engisprettu faraldur.

Við fáum ekki lengur erlend bílalán og afborgunin af húsinu er orðin fjórföld en þetta gæti verið verra.

"Þetta reddast" mun líklega bjarga okkur.


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.05.2009 10:54:22 / reyniratli

Þarfir

Hverjar eru raunverulegar þarfir fólks ?

Hvað þurfum við fólk til að lifa af ?

Fæði  larfa  sæmilegt  húsaskjól fjölskyldu og vini ?

Eða steikur upp á hvern dag 50 milljóna eiinbýlishús , bens til langferða og í fínu vinnuna , corollu í snattið handa konunni, og upphækkaðan landcruiser í fjallaferðirnar , djamm um hverja helgi , nýjustu fatatískuna levis diesel gucci dolge gabbana, utanlandareisur 3 á ári að lágmarki , golf hestamennsku eða annað dýrt fínt áhugamál eða ...

Hverjar þarfir hvers og eins eru verður hver og einn að meta sjálfur . Sumir eru einfaldlega ekki hamingjusamir eða telja sig ekki geta verið hamingjusama án þess að geta keypt sér eitthvað.  Íslenska veikin.

Ég er út í sveit í þýskalandi  og hér í kring sé ég stundum athyglisvert fólk . Í gær sá ég til dæmis gamla konu draga sér eldivið úr skóginum á ennþá eldri traktor . Klæðnaður hennar vakti athygli mína.  Hún hafði drapplitað sjal eða klút um höfuðið gamla gráa kápu og svuntu að framan og engan sérstakan skófatnað .  Það sem heillaði mig var að það skein af henni nægjusemi . Hennar þarfir voru algjörlega í lágmarki. 

Ég gat ekki séð að hún væri óhamingjusöm í gömlu leppunum sínum í gamla trallanum sínum sem rétt hökkti . Hún brosti til mín og sagði servous þegar ég reið framhjá og mér fannst sem eitt augnablik að ég hefði slysast inn í aðra vídd .

Kannski er kominn tími til að við skilgreinum upp á nýtt þarfir okkar og hugleiðum hvað er mikilvægt í þessum heimi .

Hvað þurfum við í raun til að vera hamingjusöm ? Jú skattarnir hækka og við höfum minna að bruðla með milli handanna en kannski er það bara jákvætt. Kannski lærum við að lifa á einfaldari hátt í sátt við náttúrulögmálin. Kannski lærum við að sönn hamingja hefur ekki neitt með íslensku veikina að gera.

The pursuit of happiness is a most ridiculous phrase; if you pursue happiness you'll never find it.    
C. P. Snow (1905 - 1980)



» 0 hafa sagt sína skoðun

30.05.2009 17:00:42 / reyniratli

Ísland

Sæl

Við íslendingar erum hálfvitar svo einfalt er það. Fyrst tökum við okkur til og höldum party aldarinnar og skítum á stofugólfið brjótum allt sem hægt er rífum kjaft við nágrannana eyðileggjum rósarunnana þeirra og stöndum stolt yfir rústunum og segjumst sterkust gáfuðust fallegust og stórasta land í heimi.
Núna er þynnka í gangi og ofur denni og súper jóka hafa tekið að sér að hreinsa til eftir partyið . Það er ekki auðvelt verk , því engin vill taka ábyrgð á neinu sem gerðist um kvöldið og enginn kannast við það að hafa hagað sér eins og fífl en nonni geira og bjöggi þeir voru slæmastir og þeir eiga bara að taka til og borga skemmdirnar ekki hinir...

Ó.k viðurkenni að nonni var enginn engill og hvað þá bjöggi en þeir bera ekki ábyrgð á því að hinir létu óspart skrifa hjá sér á barnum kvöldið sem veislan var.  Núna kannast engin við það að hafa látið skrifa hjá sér og fyllerísskuldin er kölluð skuldir heimilanna.

Ég vorkenni því fólki sem núna þarf að horfast í augu við það að erlenda barskuldin er orðin tvöföld en því miður var þetta nokkuð fyrirsjáanlegt ef maður er vitur eftir á.
Íslenska krónan er pínku gjaldmiðill sem var blásin upp af  bjögga og nonna til að hafa efni á góðu partyi . Það breytir samt sem áður ekki því að skríllinn lét blekkjast og hóf þá upp til skýja svo lengi sem þeir splæstu á barnum. Allir hafa þó vitað innst inni að allar veislur taka endi .

Núna þarf hver og einn að horfast í augu við afleiðingar sukksins og borga barreikninginn.
Hver og einn ber ábyrgð á sínum barreikning . Allir vissu að ísl krónan gat fallið og að það fólst áhætta í því að taka erlent barlán . Barþjónninn hann Davíð hjálpaði reyndar ekki til með því að gera eins lítið úr áhættunni og mögulegt var enda ekki erfitt að blekkja fólk þegar veisluvíman blindar öll vit.


Það er ekki öfundsvert hlutverk hjá denna og jóku að taka til eftir þetta sukk og þau skapa sér nákvæmlega engar vinsældir á  því sem þarf að gera.
Ég fullyrði að þetta sé fyrsta og síðasta vinstri stjórn íslandssögunnar og pólitískt sjálfsmorð hjá þessu hugrakka fólki.

Skattahækkanir eru líklega eina leiðin til að draga landið upp úr þessari sukksúpu og þær bitna á öllum . Mér finnst reyndar að það þurfi að hundelta bjögga og nonna og taka af þeim allar þær krónur sem þeir eiga og láta þá borga sinn hlut sjálfa .
Einnig væri ekki vitlaust að svipta þá ríkisborgararétti og ákæra þá fyrir landráð eða eitthvað álíka.

Eiginhagsmunaflokkur auðvaldsins mun leggja sig allan fram við að firra sig allri ábyrgð á gjörðum sínum og fær öflugan stuðning frá bjánaflokknum kjaftfora sem fyrir nokkrum árum var flokkur landsbyggðarinnar og bænda en er víst núna fluttur á mölina.

Þeim mun takast ætlunarverk sitt og fá almenning á sitt band og í næstu kosningum spái ég því að V.G fái 8 % fylgi Samfó 9% og D og B rest . . .

Kram . . .






» 1 hafa sagt sína skoðun

07.05.2009 18:16:46 / reyniratli

Í klóm drekans inn í esb

Sæl

Ég er á móti ESB og þvi að við íslendingar gerumst olíufurstar.

Ég er á móti því að umræðan um bæði þessi mál sé bara á eina vegu og að það séu engir aðrir kostir í stöðunni.

Ég er á móti samfylkingunni og jóku nónó. Þau hafa ekki neitt að bjóða nema skríða í faðm esb hræfuglsins ráðaleysið og valdafíknin er algjör.

Ég er á móti því að fórna nesinu mínu og heimabyggð handa texaco eða til Romans abrahomivic eða einhverja annara drullusokka sem er skítsama um okkur.

Ég er á móti því að íslendingar skuli ekki sjá hversu stórfenglegt landið okkar er, hversu hreint loftið okkar er, hversu góðan mat landið elur okkur og hversu yndislegur kaldur vindurinn  er samanborinn við hitasvækjuna í öðrum löndum.

Ég er á móti því að fólk hafi aldrei kynnst hungri.

Ég er á móti því að fólk skilji ekki þegar það hefur magafylli.

Ég er á móti því að besta land í heimi sé ekki metið að verðleikum.

Kram


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.04.2009 17:08:08 / reyniratli

skattar...

Sæl

Ég hef lengi haft frekar mikla skömm á skattpíningu og þótt ég sé vinstri sinnaður þýðir það ekki að ég sé hlynntur því að ríkið steli af mér síðustu aurunum til að borga kampavín í einhverja útlenska stórfursta eða annan óþarfa.
Ég er löglega hér í þýskalandi og fékk minn fyrsta launaseðil um daginn, sem var afskaplega góð kennslustund í því hvernig ríkisstjórn getur falið skatta .
Ég borga 20 prósent beint í skatt  sem er alveg sanngjarnt. En bíddu við ... Svo borga ég 25 prósent sirka í sjúkra tryggingar og atvinnuleysissjóð og sjóð til styrktar austur þýskalandi sem er reyndar ekki til lengur .
Um fjörutíu og fimm prósent af laununum mínum hverfa í skatta og gjöld sem eru ekki kölluð skattar en eru hvað jú duldir skattar.
Íslendingar væla þeir vilja ekki hærri skatta en þeir vilja inn í evrópu sambandið því þar borgar maður víst bara tuttugu prósent skatt og allt er í blóma.

Eitt finnst mér líka frábært við okkur íslendinga að í nýyfirstaðinni kosningabaráttu sögðu tveir frambjóðendur vg sýna skoðun hreint og beint og voru einlægir og heiðarlegir . Kolla klikk tjáði sig svo eftirminnilega um olíuvinnsluna sem sjálfssagt hefur nú eitthvað verið slitið úr samhengi af  frétta skúnkum og svo blessunin hún katrín jak sem tjáði sig um skattamál. Katrín sagði einfaldlega að til að mæta vandanum yrði líklega nauðsynlegt að hækka skatta og að hún vildi frekar reyna lækka laun opinbera starfsmanna en að reka þá.

Þessi heiðarleiki sérstaklega katrínar varð til þess að v.g tapaði fylgi , við íslendingar erum nefnilega ekki vön því að stjórnmálamenn segi satt og raunveruleikann forðumst við sérstaklega ef hann er ekki á bleiku skýi blekkingarinnar.

Ég býst við að sjálfstæðisflokkurinn hafi séð sömu lausnir og katrín nema þeir hefðu hækkað skatta rekið alla opinbera starfsmenn og einkavætt allan ríkisreksturinn en þeir eru of miklir refir til að segja frá því fyrr en allt væri afstaðið.

En opinberu starfsmennirnir kjósa þá aftur og aftur þrátt fyrir gyllinæðarhnúta og krónísk sár í görn eftir sjallabellina.

Lifið heil og fagnið vinstra vori.






» 0 hafa sagt sína skoðun

20.04.2009 18:12:55 / reyniratli

Stefnan

Ég ákvað að birta hérna af gamni mínu stefnu V.G sem ég kópi peistaði af heimasíðu þeirra vg.is.

Njótið vel


Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill beita sér fyrir róttækum þjóðfélagsumbótum almenningi til hagsbóta, hefja vernd náttúru og umhverfis til vegs á Íslandi og treysta byggð um allt land. Hreyfingin er samstarfsvettvangur og baráttutæki þeirra, sem vilja útrýma kynjamisrétti og tryggja jafnrétti, kvenfrelsi og aukinn jöfnuð í samfélaginu.

Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill byggja upp lýðræðislegt og réttlátt þjóðskipulag grundvallað á virkri þátttöku almennings. Hreyfingin hafnar alræði markaðshyggjunnar og vill varðveita sjálfstæði þjóðarinnar og forræði yfir eigin auðlindum. Vinstrihreyfingin­ – grænt framboð vill binda enda á hersetu í landinu og aðild að hernaðarbandalagi, en leggur áherslu á að eiga gott og friðsamlegt samstarf við allar þjóðir, vernda náttúru og umhverfi landsins og tryggja sjálfbæra þróun samfélagsins.

Vinstrihreyfingin - grænt framboð telur sígildar áherslur vinstristefnunnar um jöfnuð og félagslegt réttlæti, róttæk umhverfisverndarsjónarmið og kröfur um sjálfbæra þróun eiga og verða að fara saman. Hvorugt fær staðist án hins þegar til framtíðar er litið. Lífskjör og velferð núlifandi kynslóða mega ekki byggja á því að náttúrugæðum sé spillt og gengið á rétt þeirra sem á eftir koma. Á sama hátt felst það í heilsteyptri umhverfisverndarstefnu að skammtímahagsmunir, neysluhyggja og gróðafíkn víki fyrir verndun umhverfis og varðveislu náttúrugæða. Verkefnið er að lyfta gildum raunverulegra lífsgæða, skapa samfélag réttlætis og jafnaðar í góðri sátt við lífríkið allt og móður jörð

Náttúra og umhverfi

Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill vernda íslenska náttúru og auðlindir lands og sjávar. Náttúruauðlindir eiga að vera sameign landsmanna og þær á að nýta í þágu almannahagsmuna án þess að gengið sé á umhverfið. Atvinnuvegir og fyrirtæki þurfa að laga sig að kröfum um sjálfbæra þróun og vistvæn framleiðsluferli. Varðveita þarf hreinleika landsins í almannaþágu til frambúðar svo og til að treysta atvinnulíf og framleiðslu og sölu á hollum neysluvörum. Taka þarf upp græna þjóðhagsreikninga og meta verðmæti ósnortinnar náttúru. Skattkerfið á einnig að hvetja til umhverfisverndar.

Vinstrihreyfingin - grænt framboð styður sjálfbæra orkustefnu og leggst gegn mengandi stóriðju og stórvirkjunum sem valda mikilli röskun á náttúru landsins. Við viljum vernda hálendi Íslands og stofna þar til stórra þjóðgarða og friðlanda. Við gerum kröfu um víðtækan almannarétt í sátt við landið og fólkið í dreifðum byggðum. Lífríki landsins, landslag og jarðmyndanir þarf að vernda með heildstæðri löggjöf og skipulagi. Við styðjum vistvænar fiskveiðar og vernd uppvaxtarsvæða nytjafiska.

Vinstrihreyfingin - grænt framboð leggur áherslu á öfluga alþjóðlega samvinnu um umhverfismál og bindandi sáttmála svo að land okkar og jörðin öll verði góður bústaður til frambúðar. Vernd hafsins gegn mengun er úrslitaatriði fyrir Íslendinga. Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill stuðla að sem bestri samvinnu við samtök áhugafólks um umhverfisvernd og virkja almenning til þátttöku í að byggja upp vistvænt, sjálfbært samfélag í þágu núlifandi og óborinna kynslóða.

Jafnrétti, félagslegt réttlæti og efling byggðar

Vinstrihreyfingin - grænt framboð grundvallar stefnu sína á jöfnum rétti allra án tillits til kynferðis, kynhneigðar, trúarbragða, litarháttar og uppruna. Aðstaða allra landsmanna verður að vera sem jöfnust, óháð búsetu og félagslegri stöðu. Við gerum kröfu um fullt jafnrétti til náms og jafnan rétt allra til opinberrar þjónustu, upplýsinga um samfélagsleg málefni og til virks tjáningarfrelsis. Félagslegt húsnæðiskerfi er nauðsynlegur þáttur í því að tryggja velferð landsmanna. Skylt er að tryggja vaxandi hópi aldraðra mannsæmandi kjör og aðstæður til að taka virkan þátt í samfélaginu. Gera verður átak til að stórbæta kjör og allar aðstæður öryrkja. Vinstrihreyfingin – grænt framboð vill auka þátttöku feðra í uppeldi barna sinna. Uppeldi og velferð barna er ábyrgð foreldra og virða þarf rétt barna til að njóta samvista við foreldra sína.

Stöðu landsbyggðarinnar verður að styrkja með róttækum kerfisbreytingum og valddreifingu til að treysta byggð. Afar brýnt er að bregðast við fólksflótta frá landsbyggðinni, fyrst af öllu með því að leiðrétta þá fjárhagslegu mismunun sem landsbyggðarfólk býr við í námskostnaði, húshitun og vöruverði. Fjölbreytt atvinnulíf og öflug menningarstarfsemi ásamt traustri samfélagsþjónustu og góðum skólum er undirstaða lífvænlegrar byggðar. Slíku verður ekki náð fram með einkavæðingu og einkarekstri í undirstöðuþáttum velferðarkerfisins, sem bitnar harðast á dreifðum byggðum. Skilgreina þarf hvaða undirstöðustofnanir samfélagsins eigi að lúta lýðræðislegum yfirráðum almannavaldsins.

Til þess að ná fram þessum markmiðum þarf að setja valdi fjármagns og markaðsafla skorður, tryggja réttláta tekjuskiptingu og lýðræðislega stjórnarhætti. Forgangsverkefni er að 40 stunda vinnuvika dugi til eðlilegrar framfærslu þannig að tryggja megi fulla atvinnu og rjúfa víta­hring lágra launa og vinnuþrældóms. Búa verður þannig um hnúta að allt verkafólk sem starfar á Íslandi njóti sömu kjara, hvaðan sem það kemur til að stunda hér vinnu sína.

Kvenfrelsi

Vinstrihreyfingin - grænt framboð telur að Ísland eigi að vera öflugur málsvari félagslegs réttlætis um allan heim. Hreyfingin vill samfélag þar sem bæði konur og karlar fá notið sín og hafnar því að fólki sé mismunað eftir kyni. Réttlátt samfélag er hagur allra - bæði kvenna og karla. Til þess að fullt formlegt og félagslegt réttlæti náist þurfa karlar að afsala sér forréttindum sem þeir hafa tekið í arf.

Kynjafræði eiga að vera sjálfsagður hluti af skólakerfinu. Forsenda kynjajafnréttis er að uppfræða komandi kynslóðir um ástandið í samfélaginu og hvetja ungt fólk til að lagfæra misréttið.

Vinstrihreyfingin - grænt framboð telur mikilvægt að laun séu ákvörðuð með tilliti til þess sem leyst er af hendi en ekki því hvort karl eða kona vinnur verkið. Tryggja verður kynjunum jafna möguleika til framfærslu og viðurkenna að samfélagið fær ekki staðist án vinnuframlags kvenna. Öflugt velferðarkerfi er ein af lykilforsendum kvenfrelsis. í slíku velferðarkerfi er ekki gert ráð fyrir ólaunaðri umönnun kvenna heldur er vinnuframlag þeirra innan kerfisins metið til launa.

Líkaminn má aldrei verða söluvara. Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill að kynferðislegt sjálfstæði kvenna verði viðurkennt og telur að konur eigi skýlausan rétt til að ráða yfir eigin líkama, þar með talið að taka ákvarðanir um barneignir.

Stjórnvöld eiga að vera skuldbundin til að tryggja konum og börnum öryggi gegn öllu ofbeldi og þeim ber jafnframt að tryggja að kynferðisofbeldi sé meðhöndlað sem lögbrot og karlar kallaðir til ábyrgðar. Kynferðisofbeldi birtist m.a. í nauðgunum, sifjaspellum, klámi, vændi, mansali, kynferðislegri áreitni og líkamlegu og andlegu ofbeldi gegn konum og börnum inni á heimilum þeirra.

Konur eru fátækasti hluti íbúa jarðar og stríð bitnar ekki síst á þeim og börnum. Brýnt er að veita konum öryggi, sýna þeim samstöðu og taka tillit til kynferðis við alla þróunaraðstoð. Viðurkenna verður mikilvægi kvenna í framþróun þriðja heimsins.

Samfélag og atvinnulíf

Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill efla samfélagsþjónustu og velferðarkerfi og tryggja að fjárhagsleg staða fólks skerði aldrei möguleika þess til að njóta opinberrar þjónustu og félagslegs öryggis. Meginstoðir velferðarkerfisins eiga að heyra beint undir ríki og sveitarfélög. Efla þarf umræðu um siðferðisleg gildi í stjórnmálum og opinberu lífi. Auðvelda þarf aðgang að upplýsingum en jafnframt tryggja persónuvernd sem aldrei má fórna á altari tækniþróunar og viðskipta.

Leggja verður allt kapp á að bæta aðstöðu fjölskyldunnar og auka möguleika fólks með ung börn til samveru. Þannig má treysta bönd fjölskyldunnar, vinna gegn upplausn heimila og sókn ungmenna í fíkniefni. Draga verður úr tekjutengingu og jaðaráhrifum í skattkerfinu og almannatryggingum. Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill styrkja stöðu launafólks til að beita samtakamætti sínu í þágu kjara- og réttindabaráttu og til að hafa meiri áhrif á þróun samfélagsins en það hefur nú.

Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill beita sér fyrir því að atvinnulífið þróist í átt til aukinnar fjölbreytni og nýti umhverfisvæna tækni. Sérstaka áherslu ber að leggja á stuðning við fjölbreytta nýsköpun, vöxt og viðgang lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Atvinnufyrirtæki eiga að greiða eðlilega hlutdeild af hagnaði sínum í sameiginlega sjóði ríkis og sveitarfélaga. Koma verður í veg fyrir óhóflega gróðasöfnun í skjóli einokunar eða fákeppnisaðstöðu einstakra fyrirtækja og skattleggja sérstaklega gróða sem sprettur af nýtingarrétti atvinnurekenda á sameiginlegum auðlindum. Mikilvægt er að hefðbundnir atvinnuvegir, einkum við sjávarsíðuna og í sveitum landsins, þróist í sátt við samfélagið og verði til styrktar byggð í landinu öllu. Nýta ber sérstöðu Íslands og íslenskar auðlindir ásamt tækni og þekkingu til að skapa landsmönnum störf í fjölbreyttu og þróuðu atvinnulífi en varast ber að einblína á allsherjarlausnir og einstaka stóriðjukosti.

Sjálfstæð utanríkisstefna, félagsleg alþjóðahyggja

Vinstrihreyfingin - grænt framboð leggur áherslu á að móta sjálfstæða íslenska utanríkis- og friðarstefnu. Ísland á að standa utan hernaðarbandalaga og hafna aukinni vígvæðingu. Íslendingar eru best settir án hers, hvort sem hann er innlendur eða erlendur. Brýnt er að friðlýsa landið og lögsögu þess fyrir kjarnorku- sýkla- og efnavopnum og banna umferð kjarnorkuknúinna farartækja. Beina verður aukinni athygli að umhverfisöryggi og vernda hafið fyrir úrgangi frá kjarnorkuverum og herstöðvum.

Við viljum efla starfsemi Sameinuðu þjóðanna og styrkja lýðræðislega starfshætti á vettvangi þeirra. Treysta ber stoðir þjóðaréttar í þágu friðar og mannréttinda og stuðla að aukinni þátttöku almennra félagasamtaka í stefnumörkun alþjóðamála. Íslensk stjórnvöld eiga að beita sér fyrir alþjóðlegum samningum um afvopnun og takmarkanir á vígbúnaði. Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill efla þátttöku Íslands í stofnunum Sameinuðu þjóðanna þar sem öll ríki eiga aðild, svo og í stofnunum eða samtökum eins og Noðurlandaráði, Evrópuráðinu og Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu.

Ísland á að styðja eindregið markmið Sameinuðu þjóðanna og ákvæði mannréttindayfirlýsingarinnar með því að leggja sitt af mörkum til að útrýma fátækt og hungri, félagslegu ranglæti, misskiptingu auðs, kynþáttamismunun, mannréttindabrotum og hernaðarhyggju. Íslendingar eiga að stórauka framlög sín til þróunarstarfs og leggja fátækum þjóðum lið á alþjóðavettvangi. Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill efla samstarf allra þjóða heims á grundvelli jafnréttis og gagnkvæmrar virðingar fyrir ólíkum skoðunum og menningu. Nauðsynlegt er að réttur allra jarðarbúa til að njóta góðs af framförum í heilbrigðisvísindum verði viðurkenndur og virtur.

Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill tefla félagslegri hnattvæðingu fram gegn hinni kapítalísku hnattvæðingu samtímans og vinna að friðsamlegri sambúð þjóða, fullum mannréttindum, kvenfrelsi, velferð og jöfnuði allra jarðarbúa. Koma verður með sérstakri skattlagningu eða alþjóðlegum reglum í veg fyrir spákaupmennsku með fjármagn heimshorna á milli. Við teljum að öll ríki heims eigi að hafa óskoraðan rétt og tækifæri til að nýta auðlindir sínar á skynsamlegan hátt í því augnamiði að byggja upp velferðasamfélög sem standast kröfur um sjálfbæra þróun. Til þess að svo megi verða þarf að leysa hinar fátækari þjóðir af skuldaklafa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans, og endurskoða starfsemi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar frá grunni. Leikreglum heimsviðskipta þarf að gerbreyta til að tryggja félagslegt jafnrétti og virðingu fyrir öllu umhverfi.

Samskipti við Evrópusambandið ber að þróa í átt til samninga um viðskipti og samvinnu, m.a. á sviði menntamála, vinnumarkaðsmála og umhverfismála. Hugsanlegur ávinningur af aðild Íslands að Evrópusambandinu réttlætir ekki frekara framsal á ákvörðunarrétti um málefni íslensku þjóðarinnar og er aðild að Evrópusambandinu því hafnað. Hagsmunir fjármagns og heimsfyrirtækja eru í alltof ríkum mæli drifkraftar Evrópusamrunans, miðstýring, skrifræði og skortur á lýðræði einkennir stofnanir þess um of.

Vinstrihreyfingin - grænt framboð lýsir stuðningi við hvers kyns friðsamlega baráttu fyrir félagslegu réttlæti án landamæra og jafnframt vilja sínum til að taka þátt í þeirri baráttu hérlendis sem erlendis.







» 1 hafa sagt sína skoðun

17.04.2009 10:40:23 / reyniratli

fólk er heimskt.

Ég hef undanfarna daga rekist á bloggfærslur tengdum hinum ýmsu stjórnmálafréttum á mbl.is sem mér finnst alveg ótrúlega ómálefnalegar og hreint heimskulegar og bitrar.
Flestar þessar frétta hafa eitthvað með vinstri græna að gera.
Í flestum þeirra eru þeir sakaðir um hugleysi og að þeir þori ekki að taka á málunum.

V.G eru ekki í skemmtilegri stöðu en fólk virðist ekki ennþá búið að uppgötva þá staðreynd að ísland er gjaldþrota fyrirtæki og ekki auðvelt í rekstri.
V.G er sakað um að vilja ekki taka á málunum og að hækka skatta sé eina lausnin þeirra til að rétta af hallann að ætla lækka laun hjá opinberum starfsmönnum og margt fleira.

Heimska fólkið sem bloggar sem mest um þetta virðist ekki skilja að það er til dæmis mun skárra að lækka í launum en hafa engin laun , að það er ekki hægt að breyta kvótakerfinu á einni nóttu án þess að ALLT fari til helvítis, að það er ekki til króna í kassanum til framkvæmda, að auðkýfinga stéttin okkar í skálkaskjóli framsóknar og sjálfsstæðismanna stal ellilífeyrinum af ömmu gömlu og bjarna ben finnst það bara allt í lagi, að sömu menn skuldsettu börnin okkar og barnabörn og bjarna ben finnst það kúl og kallar það frjálshyggju  nauðungarhyggja væri kannski réttara.

Málið er einfaldlega að það er engin lausn á þessari steypu sem við erum í og við vitum ekki einu sinni hversu djúp steypan er .

Meðan við vitum ekki dýpt vatnsins verðum við að stíga varlega niður en ákveðið samt og það finnst mér VG og Samfó hafa gert.

Ég er afskaplega feginn því að þessi stjórn sem er núna ætlar að halda velli eftir kosningar og ef fólk opnar nú eyrun og augun og sér hversu gjörspilltur og ónýtur málefnalega sjálfsstæðisflokkurinn er þá trúi ég ekki á annað en afhroð hans í yfirvofandi kosningum.





» 0 hafa sagt sína skoðun

01.04.2009 16:28:57 / reyniratli

HA?????

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/04/01/oryggi_ibua_ognad/


Ég var nú bara að heyra af þessu núna, og get ekki orða bundist. Ég skil að það þurfi að spara og það allt eftir að við urðum fátæk þjóð en þetta er ekki sparnaður þetta er hrein heimska.
Allir íslendingar EIGA rétt á lágmarks heilbrigðisþjónustu ,og á þórshöfn hefur verið rekin lágmarks heilbrigðisþjónusta undan farin ár eða áratugi . Einn læknir og 2 til 4 starfsmenn aðrir eftir atvikum . Sjúkrabíll sem ég man ekki betur en að hafi verið keyptur að einhverju leyti í gegnum styrki frá almenningi.
En nei það á að taka þessa lágmarksþjónustu frá okkur vegna þess að þetta kostar 1600 þús á ári.....  Mannslíf kostar samkvæmt stefnuskrá stjórnarflokkanna 1600 þúsund alla vegna á þórshöfn ..
Mér þætti nær að steingrímur gæfi hreppnum ein mánaðarlaun sín sirka það myndi líklega dekka allan þennan kostnað og hann myndi ekki svelta drulluhalinn sá ...  Amk er hann ekki þingmaður míns kjördæmis ef hann lagar þessa heimsku ekki.

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.03.2009 11:13:52 / reyniratli

skemmtilegt blogg. . .

Sæl

Mér finnst drepið á nokkrum góðum punktum í þessu bloggi ...




http://lillo.blog.is/blog/lillo/entry/842138/

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Heimsóknir
Í dag:  15  Alls: 9217